Uppáhaldsorđiđ mitt : JćjaErectus

Jæja, þá er skólinn að byrja og raunveruleikinn hefur aftur tekið við. Þar sem Ítalíuferð okkar Ásgeirs var mjög tíðindamikil þá samdi ég ljóð þegar það voru 2 dagar eftir af ferðinni, um ferðina, svona til að stytta frásögnina.

Ég hef ákveðið að skrifa ekkert um ferðina en ætla hins vegar að setja hér inn þennan ágæta kveðskap minn sem þið skuluð vinsamlegast lesa rétt. (Annars virkar það ekki)

Gjöriðsvovel.


Ítalíudvölin endar senn,
2 dagar eru þó eftir enn,
séð höfum margt og upplifað smá,
sem segi ég hérmeð frá.

Flugum með Express og það var fínt,
engu var upp á okkur klínt,
fyrr en við komum á flugvöllinn,
upphófust þá vandræðin.

Gengum og gengum en ekkert sáum,
hjálp fengum frá Ítölum fáum,
gistum á heimili Parísar*,
því Útsýn gleymdi okkur þar.

Fórum með lest lengst upp í sveit,
sáum nokkra elda og heyrðum í geit,
komumst þó lokst á leiðarenda
og þá var sko vert að benda.

Kórónur hér og demantar þar,
út um allt glitrandi gersemar,
en allt út í öskrandi Ítölum,
sem fengu ekki nóg af brúðkaupum.

Hringdi þá í hjálparkokkana,
sem oftast þó kalla ég foreldra,
þau björguðu okkur úr höllinni,
og fór þá að rætast úr ferðinni.

Fórum þá aftur niður í Róm,
heyrðum þá alveg allt annan hljóm,
í Vatíkan fórum sem margt hafði að geyma,
en ég sá ekki Páfann, hann var ekki heima.

Fórum að versla og skoðuðum margt,
keyptum föt og þónokkuð skart,
átum McDonalds að hætti bænda,
og þá hafði Ásgeir eignast frænda.

Sáum svo Colluseum í gær,
Róm er alveg hreint magnaður 'bær',
lýkur nú brátt þessu ljóði fínu
og ég held áfram sólbaði mínu.


* Hér er átt við Hilton.

-BJ

hć :*Erectus

bonjour elskurnar mínar

Sit í ótrúlega sætri íbúð rétt hjá effelturninum í ekta gömlu parísarhúsi Brosandi kom í dag og er strax búin að finna nokkrar skemmtilegar búðir og það besta er að útsölurnar byrja á morgun! Það er svona mest búið að vera rigning hjá okkur en ég er samt alveg búin að taka smá lit og svo er ég að fara til Nice á sunnudaginn og þar er 30 stiga hiti og glampandi sól þannig að þið þurfið ekki að hafa neinar áhyggjur af því að ég komi hvít heim Glottandi

er farin að sakna ykkar ótrúlega mikið.... við náðum svona varla að halda eitthvað almennilegt áður en ég fór en það verður bara haldið almennilegt boð þegar ég kem heim...

set inn myndir og svona þegar ég verð búin að taka einhverjar skemmtilegar hehe :)

Kossar og knús til ykkar :*

-Stefanía-

..Erectus

Jæja, komin tími til að blogga í  vinnunni. ...vildi bara deila með ykkur að ég hef aldrei verið jafn rík á minni ævi en samt er ég svo fátæk:(


please feel sorry for me??    nota sömu lýsingu og á ingibjörgu áðan. Bankinn minn fylltist af sleipiefni sökum óskiljanlegra saka og peningarnir bara rennna út eins og heitar lummur til "the retailers" (svo stimplað í hausinn á mér að ég man ekki íslensku þýðinguna??:S

Ég er búin að íhuga þetta og kannski maður gerist "strippari" á golfinger og fái þaðan ágætan aur fyrir "yfirvinnuna"



How do you like that?? :D

Svo er planið að hætta að vera svona frek og dekruð og hætta að væla yfir því að ég sé ekki búin að heimsækja hálfan hnöttin og hugsa frekar um þá sem minna mega sín



Er að pæla að stækka hana og hengja hana upp á nýja heimilinu og hugsa þannig alltaf um það hvað ég sé í raun heppin í livet!



Það er nú meiri viðbjóðurinn hvernig fólk getur komið fram við annað fólk.....ég sætti mig við ekkert minna en að vinna gegn svona hlutum danke för.....ekkert "ætla að vera rík" kjaftæði....

Erectus

Stelpurstelpurstelpur..
Þetta gengur ekki svona þetta bloggsamfélag okkar ! Sumarið er rétti tíminn til að vekja bloggpödduna sem hefur lengi legið í okkur öllum og byrja á fullu !

Allavega er þessi síða sko pottþétt ástæðan fyrir að ég meiki sumarið.. Algjörlega.

En ég hvet ykkur og alveg sérstaklega Stefaníu Frakklandsfara að blogga þegar þið stingið nefinu hér inn.

Annars er lítið að frétta úr mínu lífi.. Aðal félagsskapur minn þessa dagana eru níræðir alzheimersjúklingar og ekki er mikið að frétta af þeim. Hér fór hinsvegar fram í dag kvennahlaup (a.k.a starfsfólk að púla upp brekkur með fólk í hjólastólum) og gladdi það margar konurnar sem sitja nú inni prúðar með medalíurnar sínar um hálsinn.   

Ég vil nota tækifærið og óska Írisi opinberlega til hamingju með afmælið sitt sem var núna í fyrradag. Húrrahúrra!

Látið í ykkur heyra.



BJ

SumarfríErectus

Mæja skoraði á mig að blogga og hér með er ég að því og skora á ykkur hinar að taka við ykkur ;) Við erum komnar í sumarátak..

En ég er komin á Selfoss og byrjuð að vinna í landsbankanum sem er alveg ótrúlega gaman og shitt hvað það verður næs að vera í helgarfríum í sumar:D
Það er líka geggjað að vera komin í sumarfrí og við ætlum að fara í margar útilegur.. OK, ég og mæja erum komnar með drög að einni góðri í Þórsmörk fyrstu helgina júlí;)

En helgin er annars búin að vera mjög-mjög róleg hjá mér, ég er bara ekki búin að gera mikið annað en að hanga í tölvunni og reyna læra á myspace, en þetta er allt að koma.. www.myspace.com/steinunnpalma  Ég fór líka í heimsókn til Rakelar og kíkti á litla prinsinn hennar og ég get svarið það, hann er sætasta barn sem ég hef séð, algjört krútt:):)

Núna í kvöld er ég svo að fara taka frænku mína í dönsku kennslu þar sem hún er að fara í dönskupróf á morgun og ja vi skal snakke dansk hele aften, (eins gott að vera nýbúin að taka stúdentspróf í dönsku (og eins gott að maður nái, en ég hef nú ekki miklar ágyggjur af því þar sem Ingibjörg dönskukennari var alveg æst í að ég færi að reyna við strákinn hennar sem vinnur líka hjá landsbankanumUllandi, hún færi ekki að  fella tilvonandi tendadóttur  sína, hehe)

En stelpur látið heyra í ykkur og verið duglegar að blogga sommerhilsen Steinunn.:D

okeeeiii...Erectus

Grátaþið eruð ekki alveg að gera ykkur hérna á þessari síðu!!...en hvað með það! Sommerferien er starten (kann ekki dönsku) og svona...rigning á þessum dásamlega frídegi (man aldrei hvort það er hvítasunna eða uppstinningadagur). En ALLAVEGA....

skipti í ræktina: 1

dugleg! ... svo vorum við Ingibjörg að ræta þennan tölvupóst sem við fengum frá skólastjórnendum um daginn. Ef Klara okkar elskulega vinkona hringir í okkur þá erum við bara að pæla að skella á (vegna óborganlegra hræðslu) og það verður nokkurnvegins vona

DRINGGG DRINNGGG...
við: halló?
Klara: Já sæl þetta er Klara.....
við: did did did did....
Klara: ???

Þannig er nú nefninlega það að ef hún hringir þýðir það að við erum fallin og megum ekki mæta í verslunarprófs útskriftina sem þýðir að VIÐ ERUM FALLIN!!! ég er alveg stórsmeyk við það....Gráta

En já ég er s.s. bara i chillinu í dag. þarf að laga til víst, reyna að drattast í ræktina og svo er snyrtikvöld hjá Dóru vinkonu minni:D:D hlakka svo til að sjá allar stelpurnar úr Folda!! það verður gaman;)
því lets face it, enginn vill lýta svona út:




Þess vegna er best að koma í veg fyrir það sem fyrst og við temjum okkur fagleg vinnubrögð hér eftir!!

Annars er ég hætt að drekka, við skötuhjúin fengum að vera til skiptis á klóstinu og ég ældi grænu og við komin uppí rúm fyrir eitt á laugardaginn....ekki gaman!

Annars vil ég líka bæta því við Steinunn mín þar sem þú varst að fríka út á klóstin og öskra á mig að hleypa heiðari inná klósett....ÉG GAT ÞAÐ EKKI...hann hélt hurðinni lokaðri...so no need to panic...þetta var hvorteðer bara bolla;)

:DErectus

Jæja þá erum við hálfnaðar með prófin og mér finnst við varla byrjaðar sem er bara svít! 

En ég er svona að gera mér plan þar sem ég er búin að safna mér smá forða utan á mig útaf prófunum..(e-ð sem maður á að gera á veturna..ekki rétt fyrir sumarið). Markmiðið er að lýta nokkurnvegin SVONA út..



Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég þarf að fara í feita NEF-aðgerð, gera svona grilljón magaæfingar á dag, fara í svona fimm hundruð ljósatíma og klippingu og hliðarspiksfitusog.

EN það er í góðu standi;) ....svo maður verði nú hot fyrir LA!

kv MAría

Peysufatadagur:DErectus

TAkK TAkk fyrir æðislegan peysufatadag allir:D já þetta var alveg með eindæmum æðislegur dagur, ég hefði bara ekki trúað því hvað það er gaman að dansa skottís á Ingólfstorgi eða labba í halarófu niður laugaveginn, jú eða skrifa í árbók hjá fólki, nýtt hobbý komið hjá mér ;) en já þetta var bara alveg hreint æðislegt, byrjaði vel hjá henni Jónínu og Jóni  vinum okkar í framsókn þar sem við dönsum partý polka, nýr dans sem verður klárlega stigin á öllum böllum héreftir og fleiri stuðdansar sem kallinn í grænu skyrtunni kenndi okkur eins og t.d. Tangó;) en þá fórum við í versló þar sem hann Henrik Sailesh tróð upp með e-h fólki sem hann þekkti "ekki neitt" og svo má ekki gleyma peysufatalaginu sem ég er búin að vera með á heilanum í allan dag ... ég er í versló, ég elska peysó trallalala... gott lag
En já takk fyrir komuna stelpur til mín, ýkt gaman að fá ykkur og vona að þið hafið skemmt ykkur vel:D svo var nú ekki leiðinlegt þegar við færðum okkur yfir í partýið hjá 4-F stuð þar ójá.
Takk en og aftur fyrir frábæran dag sem ég ætla aldrei að gleyma, ekki einu sinni þó ég verði orðin 118 ára og kölkuð

ps. ég skal reyna að skella e-h myndum inn en  eins og ég hef áður sagt held ég að myndasíðunni líki e-h illa við mig þar sem hún bara virkar aldrei þegar ég reyni að skella myndum inn

kv. Steinunn peysufataaðdáandi N.1

Mćja SólskinsbarnErectus

Jæja, n ú var ég að gerast heimsforeldri....og nei það er ekki það sem ég var að tala um í dag. Það er SOS sem ég var líka að sækja um að gerast;) gaman að styrkja lítið sætt barn í vanda útí heim :D ...ég er að segja ykkur það.....allt í allt fyrir bæði heimsforeldri og SOS er 3300 kr sem er ekki baun í bala....(jú ok, einn poki í 11-11)

Allavega, stelpur....ég mæli með þessu. Þetta er bæði fallegt og gott :) :)

Hehe...annars fórum við nú í ansi tilgangslausa Njáluferð í dag. sáum bara drullu útum gluggann...:S .... hefði verið gaman að getað séð e-ð aðeins meira.

En svo verð ég líka að segja eitt...ég er með eitt stórt samviskubit yfir að hafa skipt út börnunum mínum. gullfiskarnir voru víst ekki nógú góðir fyrir okkur svo við fórum í dýragarðinn (einhver búð) og keyptum svona 20-30 nýja fiska og SELDUM hina...sem áttu nöfn og allt:(

Jæja....eins og þið sögðuð í dag. Ef barnið okkar verður ljótt...ætli við förum ekki bara uppá fæðingardeild að kýkja á úrvalið og bítta barni...finna e-ð betra en það sem við áttum fyrir? ...það er spurning..

Farţegaflug aldrei veriđ öruggara en núErectus

Fari maður daglega í flugferð með farþegaflugvél frá evrópsku eða n-amerísku flugfélagi mun maður ekki verða fyrir slysi fyrr en eftir 14.000 ár. Þetta hafa tölfræðingar reiknað út til að sýna fram á hversu lítil hætta sé því núorðið fylgjandi að fljúga.

Þetta kemur fram á fréttavef Aftenposten („Aldri vært sikrere å fly“).

Flug er mörg þúsund sinnum öruggari ferðamáti en að fara í bíl eða fótgangandi. Aðra hverja sekúndu lendir farþegaflugvél eða fer í loftið einhversstaðar í heiminum.

Í fyrra fór hættan á „boltapi“ (þ.e. að bolur flugvélar eyðileggist í slysi) í fyrsta sinn niður fyrir 0,2 skipti fyrir hverja milljón flugtaka farþegaflugvéla.

Álíka margir fórust í flugslysum í fyrra, eða 748, og árið þar áður (778). En þar sem fjöldi flugtaka jókst um 5,2% milli áranna, og fjöldi slysa minnkaði úr 16 í 11 jókst flugöryggi tölfræðilega.

gott að vita;)

Ađalvalmynd

Könnun

Hvađ á ađ gera í sumar?

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...